Súpa fyrir sálina
19. maí 2008
Heilsuhúsið birti þessa uppskrift í heilsupóstinum 01. tölublað - 12. árgangur - feb. 2007
400g blaðlaukur, snyrtur og skorinn í sneiðar
1 dós lífrænar kjúklingabaunir
1 dl hvítvín eða mysa (við notuðum mysu og það kom mjög vel út)
1 l. vatn
1 teningur kjúklingakraftur eða grænmetiskraftur t.d. Plantaforce
4 stk. hvítlauksrif, marin
5 stk. fennelfræ (notuðum örugglega 15 stykki) :O)
2 msk ólífuolía
salt og pipar
3 msk Egypskt Dukkah frá Yndisauka (algerlega ómissandi í súpuna og ofan á brauð smurt með ólífuolíu)
Aðferð
1. Hitið ólífuolíuna í víðum potti.
2. Steikið hvítlaukinn og fennelfræin í 30 sek. í olíunni.
3. Bætið blaðlauknum út í og steikið hann í þrjár mínútur með hvítlauknum og fennelfræunum.
4. Bætið u.þ.b. 1 tsk salti saman við.
5. Hellið svo kjúklingabaununum út í með vökvanum og svo vatninu, kjúklingakraftinum og hvítvíninu, látið malla í um 20 mín.
6. Maukið svo 1/3 hluta af súpunni í matvinnsluvél eða mixer og blandið aftur saman við súpuna.
7. Smakkið til með salti og pipar.
8. Hellið súpunni í skálar, stráið Dukkah yfir og berið fram með góðri samvisku.
9. Munið að signa yfir pottinn!